Aðalstræti 112, 450 Patreksfjörður, sími:456 1245, fax:456 5755, gsm:893 1554

 

Fyrirtækið

 
 

Vélsmiðjan Logi ehf. Var stofnuð sem hlutafélag árið 1955.

Aðalhvatamaður að stofnun fyrirtækisins var Sæmundur Kristjánsson, vélsmiður, en aðrir hluthafar ásamt honum voru Friðgeir Guðmundsson, Snorri Gunnlaugsson, Hlynur Ingimarsson, Þórður Helgason og Bogi Þórðarson  kaupfélagsstjóri fyrir hönd Kaupfélags Patreksfjarðar sem var stærsti hluthafinn fyrstu áratugina. Friðgeir Guðmundsson var verkstjóri Vélsmiðjunnar Loga fyrstu árin þar til Sæmundur tók við verkstjórastörfum sem hann sinnti til dauða dags 1991, síðan hefur sonur hans Barði Sæmundsson stýrt fyrirtækinu.

Fyrir stofnfé var ráðist í byggingu húss að Aðalstræti 112, en það hýsir starfsemina enn í dag. Enn fremur var fjárfest í nauðsynlegum búnaði til vélsmiðjureksturs. Á árunum 1980 til 1990 var byggt við húsnæðið og á síðustu árum hefur verið lögð áhersla á að endurnýja tækjabúnað þannig að nú er Vélsmiðjan Logi mjög vel búin að tækjum og húsnæði.

Meginhlutverk vélsmiðjunnar Loga ehf. er að sinna almennum skipa- og vélaviðgerðum fyrir sjávarútveginn og verktaka, ástamt tilfallandi viðhaldsvinnu. Eins og í mörgum öðrum byggðarkjörnum á landsbyggðinni þá byggir Patreksfjörður afkomu sína af sjávarútvegi. Þar er  að finna ýmsar tegundir og stærðir af skipum sem öll þurfa á nauðsynlegri viðgerðaþjónustu að halda. Sérsmíði af ýmsum toga og uppsetningar þeim tengdar hafa aukist til mikilla muna síðustu árin.

Vélsmiðjan Logi hefur lagt áherslu á að hafa mentaða starfsmenn í sinni iðn og hefur í gegnum tíðina útskrifað 14 nema í vélvirkjun.

Frá upphafi hefur Logi ehf. stundað sérsmíðar á fiskigoggum og fiskihökum, sem nálgast má hjá söluaðilum víða um land.   Vélsmiðjan Logi hefur einnig ávalt séð um viðgerðir á stærri bifreiðum og þungavinnuvélum.

Vélsmiðjan Logi hefur til sölu marga vöruflokka til málmiðnaðar, einnig rekur hún N1 verslun sem er með olíuvörur, hreinsivörur og hlífðarfatnað svo lítið sé nefnt.